Samantekt um þingmál

Staðgreiðsla opinberra gjalda og tryggingagjald

659. mál á 150. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að veita fyrirtækjum, sem lenda í tímabundnum rekstrarörðugleikum vegna tekjufalls, svigrúm til að standa skil á sköttum og opinberum gjöldum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að gjalddaga helmings þeirrar staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds, samkvæmt lögum nr. 45/1987 og lögum nr. 113/1990, sem er á gjalddaga 1. mars 2020, verði frestað um mánuð (til 1. apríl) og eindagi verði 14 dögum eftir það. Um tímabundna og almenna einskiptisaðgerð er að ræða og því er lagt til að við áðurnefnd lög bætist ný ákvæði til bráðabirgða.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
Lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir því að þær lagabreytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu hafi í för með sér seinkun á tekjum ríkissjóðs að fjárhæð 22 milljörðum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar tæknilegum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. mars 2020 um að beita sér fyrir markvissum aðgerðum til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19.


Síðast breytt 17.03.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.